Jæja, jólin búin og ég er komin aftur til Skotlands.
Ég nenni nú ekkert að segja frá því hvað ég gerði heima á Íslandi... í stuttu máli þá var þetta allt bara voða nice, hittum fjölskyldu og vini og borðuðum góðan mat!
Ég hef þó eina sögu:
Á áramótunum þá ákváðum við að fara á 90´s ballið á Nasa. Þegar að við mættum á Nasa þá var staðurinn orðinn troðinn af fólki, ótrúlegt hvað það voru margir sem að svindluðu sér inn! Ég þekki örugglega 15 manns sem að voru þarna inni sem að voru ekki með miða... og það var bara það fólk sem að ég vissi um! Enda var mikið af fólki á staðnum. Það skemmdi það þó ekki að það var dúndrandi stuð!
Um 5 leytið þá var ég eitthvað að hanga með Snorra, allt í einu þá er hann horfinn (líklega að tjatta við einhverja píuJ) en ég er þá orðin þarna ein, ætla að fara að leita að Einari og restinni af liðinu. Ég held á svona Glowstick í hendinni... ekkert með það, ég er bara eitthvað beygja hana aðeins þegar að glowstickið allt í einu spríngur og allt neon gumsið úr því sprautast yfir mig alla og inn í eitt augað á mér! Jiii þvílíkt panic sem að rann yfir mig... ég stóð þarna glóandi á miðju gólfinu og sá allt svart með öðru auganu. Ég hleyp inn á baðherbergi þar sem að ég ætla að skola þetta af mér!
Hehe fólk hefur líklega haldið að ég væri á einhverjum sterkum lyfjum því að inn á baði þá var ljós þannig að neon vökvinn sem að var út um allt á mér sást ekki þar inni. Ég hljóp að vaskinum og byrjaði að skola af höndunum og handleggjunum á mér, byrjaði svo að gusa vatni framan í mig og inn í augað á mér... fólk glápti bara á mig og fór bara að færa sig aðeins frá mér... hehe, ég var öll orðin í maskara og já ég skil fólkið nú alveg vel að það hafi haldið að ég væri útúr dópuð... en vatnið gerði ekkert fyrir augað... svo ég hlóp bakvið barinn og inn um bakdyr þar... þar var staff og þau hjálpuðu mér að skola augað með einhverju sótthreinsi stuffi!
Mér var enn mjög íllt í auganu nokkrum mínutum síðar svo að ég ákvað að fara upp á bráðamóttöku.... ég og Einar keyrðum þangað. Þegar að við komum þá sagði ég þeim kennitöluna mína eins og venjan er. Þá segir konan: Já ég sé að þú ert með lögheimili í Bretlandi. Ég: Já Konan: þá mun skoðunin kosta 26.500 kr. WHAT!!!!!
Já það varð ekki mikið úr þeirri skoðuninni þar sem að ég tímdi ekki að borga 26.500 til þess að láta einhvern læknabjána segja mér að það væri allt í lagi með mig!
En nóg um þetta....
Ég og Einar komum til skotlands núna á sunnudagskvöldið, flugið gekk vel og vorum við heppin að gaurinn sem að við búum með sótti okkur upp á flugvöll þannig að við þurftum ekkert að vera að stússast með farangurinn í lestum og eitthvað vesen!
Ég verð hérna þangað til á föstudaginn, þá fer ég til Svíþjóðar. Það verður langt ferðalag.
Ég fer með rútu héðan til Glasgow um hádegi á föstudaginn, frá glasgow þarf ég svo að taka lest út á prestwick sem að er flugvöllurinn sem að ég fer frá. Ég lendi í Svíþjóð klukkan 21:35, þá þarf ég að taka rútu til Stockholms sem að tekur um 1 og hálfan tíma... þar ætla ég að reyna að ná síðustu lestinni upp á flugvöllinn í stockholmi. Næsta flug hjá mér fer ekki fyrr en 11:25 næsta dag þannig að ég sef líklega bara upp á flugvellinum um nóttina... svo um morguninn þá er það bara flug frá Stockholmi til Umeå þar sem að ég mun búa næstu 4 mánuðina J
Langt ferðalag...úff
En já, ég er semsagt að flytja til Umeå, ætla að flytja inn með bestu vinkonu minni henni Anette J Við erum með 5 herbergja 2 hæða íbúð... búum reyndar 4 saman. Verður nice
Og ég er komin með vinnu í dansskóla þar sem að heitir Balettakademian Umeå sem að er stærsti dansskóli í Norðurlandinu.
Þetta er svona það helsta sem að er í gangi hjá mér núna 
Take care/ love Ragna