Strumpa

Do Hugs, Not Drugs...

08.10.2007 21:49:37 / rthd

8.október

Halló Halló

Helgin búin og ég komin í frí mánudag og þriðjudag...nice!

Um helgina er búið að vera golfmót hér í St. Andrews. Þetta er svona golfmót þar sem að einn frægur golfari og einn amatör spila saman og amatörinn er alltaf eitthvað frægt leikara lið!

Ég ætlaði nú eitthvað að kíkja á þetta en var að vinna svo mikið þannig að ég fór ekkert.

Á laugardagskvöldið fór ég samt eftir vinnu og hitti hann Einar minn og einhverja golfvallarmenn sem að hann var með. Var fínt, vorum inn á einhverjum bara að tjilla þegar að Hugh Grant stendur allt í einu hliðin á okkur!

Já HUGH GRANT... var mega skrítið að sjá hann svona í eigin persónu. Vorkenndi honum samt mest, var frekar fullur og allir voru eitthvað að vesenast í honum.

Ég lét hann bara eiga sig... fannst nóg að sjá hann og standa svona nálægt honum.

Annars er lítið að frétta... bara same old!

Ég fór reyndar út í búð í morgun og var að kaupa sígarettur fyrir Einar... og ég var spurð um skilríki!!!!!

Okey ef að það væri heima, en hér þarf maður bara að vera 16 ára til að kaupa sígarettur... greiið gaurinn þegar að hann sá að ég var 22 ára. Mér er svosum sama, bara gott að þeir séu að tjékka... en kommon, lít ég út fyrir að vera yngri en 16 ?? hahahaha

 

Farin

-peace-

Björg skrifaði
Hugh Grant... uss gaman af því! En já það er betra að líta yngri út en eldri er þaggi... þú ert greinilega ungleg... þó að ég er alveg viss um að hæðin hafi mikið að segja, við litla fólkið lendum oftar í þessu heldur en þeir stóru!
Ragna skrifaði
Það er satt! Ég get nú ekki sagt að ég sé neinn risi :/ Hehe
Marta skrifaði
snúlla! ég var búin að gleyma að þú ert með blogg:) ég er alveg vonlaus í þessum net-bransa... Gott að heyra að allt gengur vel og er í góðum gír hjá þér! Fyndið þetta með sígaretturnar :) Hlakka rosa til að hitta þig í desember :*:*:*
Lillý skrifaði
Sjitt hvað ég er glöð að þú ert farin að blogga aftur, ég var næstum því hætt að kíkja á síðuna þína. Það er svo gaman að geta kíkt og lesið um hvað þú ert að vesenast í Skotlandi og svona. Love you, hlakka endalaust til að sjá þig í desember.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.