Jæja....
Vá það er svo
mikið að gerast í lífi mínu þessa stundina að ég er að verða
geðveik...
-
Próf... 2 eftir !!
-
Riðgerðasmíð
-
Flytja allt draslið mitt til Keflavíkur (er að flytja út hérna úr
Bólstaðarhlíðinni)
-
Bíða
efir svari um vinnu
-
Hvar
ætli ég fái vinnu?
-
Hvar
ætli ég búi í sumar?
-
Leita að herb/íbúð...
-
Sækja um i danskólanum i Svíðþjóð
-
Panta far út og bóka gistiheimili
-
Æfa
sig fyrir inntökuprófið
-
Danssýning þarnæstu helgi... æfingar 3 sinnum í viku
-
Og
ofan á allt þá er maður auðvitað að vinna !!!
Þá hafiði það... þetta er svona það helsta sem ég er að
braza í núna.... ef þið vitið um e-h herbergi eða e-h sem er til leigu þá
endilega látið mig vita !
En já ég er semsagt að fara út 30. maí í inntökupróf í
danskóla í Svíþjóð 
Fór í Atvinnuviðtal hjá Jafningjafræðslunni síðasta
þriðjudag og gekk bara mjög vel.... það eru samt 120 manns sem
sóttu um og það eru 8 sem fá vinnu þarna... krossið puttana !! úff
ég vona svo mikið að ég fái þetta....
Hey ég fór í bíó um daginn á V for Vandetta.... hún var
fokking tussu góð ! Mæli með henni... hún kemur nú líklega bráðum
út á spólu
J
En já stelpan er frekar bissý en svona er lífið... verð að
fara að halda áfram að læra....
P.s. ég er skotin í strák.....ekki
segja 