Strumpa

Do Hugs, Not Drugs...

26.09.2006 19:30:18 / rthd

Myndir...

Er búin að setja inn myndirnar frá skemmtikvöldinu þar sem strákarnir klæddust stelpufötum og stelpurnar strákafötum !!!

En ég blogga um lífið hér á morgun.... nenni því ekki núna :) sorry

 

 



En ef þið eruð manneskja sem mér þykir vænt um og eigið mynd af ykkur eða okkur (eða fleirum) þá er ég að safna myndum á vegginn fyrir ofan rúmið mitt !

Svona kærleiksveggur sem ég get horft á þegar ég er með heimþrá ;) ok smá væmið en það er svo gott að geta horft á alla sem ég elska ;)

Endilega sendið mér... kostar nú ekki það mikið að senda eina mynd.. kanski 30 kall eða eitthvað !!

Póstfangið mitt er:

Ragna Þyrí Dögg Guðlaugsdóttir

Åsa folkhögskola

640 24 sköldinge

Sverige

 

 



Love xxx

 

 




» 5 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 18:35:00 / rthd

24.september

Hæmm

Jamm önnur helgi liðin.. þessi var nú frekar róleg..

Búið að vera sól og 20-25 stiga hiti alla helgina, erum bara búin að liggja í sólbaði, spila, borða, horfa á myndir og æfa inn á milli J

Mjög nice...

En síðasta fimmstudag þá var svona skemmtikvöld þar sem allar stelpur áttu að klæðast eins og strákar og strákarnir eins og stelpur... shit hvað ég hélt að þetta yrði ekkert skemmtilegt.... en þetta var mega !!!

 

Strákarnir voru fokking snilld... ég set inn myndir sem fyrst ;)

En annars er lítið að frétta, dansinn gengur mjög vel...

Núna erum við aðalega í þessum fjórum dansstílunum

  • Modern
  • New style
  • Break
  • Locking

 

 



En svo byrjum við bráðlega líka í House og Jazz J

 

 



Bara gaman...

 

 



En svo erum við auðvitað líka í næringarfræði, nuddi, teygjutækni, anatomiu, sögu, fimleikum, uppeldisfræði (hvernig á að kenna dans), þolþjálfun, styrktarþjálfun o.fl

 

 



Ætla að tía mig heim þar sem fólkið er að fara að horf á V for Vandetta... hef reyndar séð hana... en hún er góð J


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 17:31:29 / rthd

19.sept sem var mun betri en 18.sept :)

Hæ... Dagurinn í dag er án efa búinn að vera betri en gærdagurinn ;)

Byrjuðum daginn á að fara í sund... ég var nú ekkert rosa spennt þar sem ég er ekkert mikið fyrir að synda... en shit hvað þetta var gaman... við erum að tala um brjáluð stökkbretti og snilldar rússíbanar í þessari sundlaug !!
Einn rússíbaninn var þannig að hann byrjaði bara með myrkri (hol) svo kom maður inn í einsog risavaxna skál... huges... og þar var vatnið eins og það er í klósettinu þegar maður sturtar niður... og í miðri skálinni var gat... og maður átti að reyna að halda sér eins lengi í skálinni og maður gat...fáranlega gaman !
og svo voru stökkbretti... hæðsta var held ég 5 metrar...

Eftir hádeigi áttum við að hafa fimleika í 2 tíma en allir voru svo búnir á því eftir allt sundið að við fengum bara frí... kl 2 þá var svo sögutími... horfðum á sögu graffiti... jamm ekki leiðinlegt það.. mynd um graff ;) mjög kúl

Já þetta geri ég í skólanum ;)

Í dag var svo vondur kvöldmatur að ég og 4 aðrir í mínu húsi ákváðum að fara niðrí bæ og fá okkur pizzu... umm :)

og nú er ég að fara að horfa á Idol....

peace...

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 17:30:05 / rthd

18.september

Hæhæ...

 

Vá hvað ég er búin að vera eitthvað útá þekju í allan dag, er ekki búin að nenna neinu, er búin að vera með heimþrá og bara eitthvað dofin...

En helgin var fín, fór til Linköping með Annzo, við fórum út báða dagana..dönsuðum að sjálfsögðu af okkur rassinn ;) fengum meira að segja frítt inn á laugardeginum því við höfðum dansað svo mikið á föstudeginum !

 

En jamm, gerðum nú ekki mikið annað, nema að tjilla e-h.

Var samt gott að koma til baka hingað, alltaf gott að koma heim (hvar sem maður skilgreinir “heim” hverju sinni).


En í morgun vorum við í breiki... mjög gaman, en samt erfitt... Breikið er án efa erfiðasti dansinn líkamlega séð.

En fokk hvað ég ætla mér að vera góð í honum eftir þetta ár !!!
En við erum búin að kaupa far til Þýskalands 20 Október !!!!!!

Erum að fara (flest úr bekknum) á Battle of the year, sem er einn stærsti dansviðburður í heimi... mest samt breik... en er líka blandað með öðru...
Shit hvað þetta verður geðveikt... fokk ;)


Nenni þessu ekki meir... er farin heima að horfa á vidjó eða að gera eitthvað sem ég þarf ekki að hugsa mikið við J









 

 



 

 



 

 



 

 



 

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 17:51:15 / rthd

13. september

Ég hata bloggcentral...fokkingprumpurassgat... eyddu allri færslunni minni !

 

 



Ég hata líka moskító flugur... ég er bitin út um allan líkamann... lítil fokking kvikindi...

 

 



En annars líður mér vel ;)

Í gær þá var sveppatínslu dagur í skólanum...jamm ég er ekki að djóka !!!



 sem betur fer þá máttum við velja okkur sjálf í hópa svo við fórum bara vinirnir útí skóg... tíndum nokkra sveppi, borðuðum muffins, lágum í sólbaði og spjölluðum.. var bara frekar nice :)

Um hádeigisbil þá fóru allir aftur uppí skóla þar sem við áttum að setja sveppina á borð inni í leikfimisalnum...



Og svo kom 2 tíma fyrirlestur um sveppina... Guð ég hélt ég mundi deyja... hver nennir að hlusta á hvaða sveppi má borða og hverja ekki og afhverju þeir heita þetta og hitt... ok kanski einhverjir en í fyrsta lagi þá finnast næstum engir sveppir heima og svo finnst mér sveppir ekki einu sinni góðir.

Í hléinu þá gáfumst við upp.... vorkenndi samt pínku manninum sem hélt fyrirlesturinn því ég held að það hafi nú ekki margir komið til baka eftir þetta hlé... hann var svo krúttlegur og hafði svo fáranlega mikinn áhuga á sveppunum... en þetta voru yfir 100 og eitthvað sveppir...kommon !



 

 



Í morgun þá vorum við í 4*puls... sem er svona tóntími.. lærum takt, nótur og um músík og fleira... eftir hádeigi var svo 4* modern dans tími....

Á morgun er mega nice dagur... erum í fríi til hádeigis og eftir það þá erum við að fara að læra nudd og fá nudd :) ummm

 

 



Úff ég var að drepa eina moskító sem var á hendinni á mér... þær eru út um allt !!!

En það er svo fyndið að vera hérna... allir búa saman og lifa saman svo þetta er bara eitt stórt slúður partý.. þú mátt ekki hreifa á þér rassinn því þá vita allir það !

Mér finnst þetta samt fínt þar sem ég er ekki innifalin í slúðrinu ;)



Í mínum bekk eru t.d. orðin 2 kærustupör.. og já við erum búin að vera hérna í mánuð :)

 

 



All you need is love... duduruddudu, all you need is love...duduruddudu

Love is all you need...

 

 



... Ég sakna Einars....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 17:18:39 / rthd

Halló allir minir vinir...

Halló.. ja eg er a lifi...

Ég er ekki buin ad nenna ad skrifa neitt tvi eg get ekki verid i tölvunni minni... allt internetid herna er i fokki og tad virka bara 5 tölvur...

En jamm simanumerid mitt her er vist +46 739 702169   var vist med eitthvad extra núll med sidast ;)

En eg var vist ekki buin ad segja ykkur tad en i sidustu viku ta ofstrekkti eg laerisvödvann tannig ad tad blaeddi adeins inn a hann.... svo eg turfti ad horfa a restina af vikunni ! Úff tad er pínku skeri hvad likaminn her skiptir miklu mali, ef hann er ekki i lagi ta getur madur alveg eins farid heim !!!

og lika tad ad vid erum 22 nemendur a dansbraut, en tad eiga bara ad vera 16-20 manns a brautinni, en tad meidast alltaf nokkrir og geta ekki verid med restina af arinu svo teir taka fleiri inn...

en eg er sem betur fer ordin miklu betri i faetinum... var med i langflestu i dag :)

I sidustu viku i sögutima ta vorum vid ad fara i gegnum danssöguna a 80's timabilinu, og vid fengum tad verkefni fyrir daginn i dag ad gera 80's dansshow bara med múvum fra tessu timabili.. erum buin ad vera ad horfa 80's break myndir alla helgina :) Ótrulega skemmtilegt.. vorum i 3 hópum og gerdum hver 4 min. show.. sem vid syndum svo i dag... mega gaman.. og fötin og allt.. tetta er svo skemmtilegt !

Her er buin ad vera sol og blida sidustu daga... stelpan buin ad fa lit og laeti ;) bara notalegt, gerdum annars litid sidustu helgi, laum i solbadi, bökudum pizzu og höfdum tad kósí !

Freak out...


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 16:00:17 / rthd

Komin með sænskt númer !

Ég er komin með sænskt númer +46 0739 702169 ;)

Ný komin úr kvöldmat... úff þetta var í fyrsta skipti sem maturinn var hrikalega vondur... var eitthvað allskonar soðið grænmeti.. var ekki gott !
En í morgun þá var þolþjálfun... þurftum að hlaupa 5 km.. fyrstu 2,5 km voru með tímatöku.. þurftum að hlaupa eins hratt og við gátum en restina máttum við skokka.
Eftir það þá var bara smá styrktarþjálfun... og eftir hádeigi var klukkutíma locking tími.
En ég nenni ekki að skrifa neitt... hafið það gott :)
       Bless...
      
           

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 16:52:21 / rthd

Markmið lífsins eru…

Markmið lífsins eru…..
 
  3 ára:  …að pissa ekki í buxurnar
11 ára:  …að eiga vini
16 ára:  …að hafa bílpróf
20 ára:  …að stunda kynlíf
35 ára:  …að eignast peninga
50 ára:  …að eignast peninga
60 ára:  …að stunda kynlíf
70 ára:  …að hafa bílpróf
75 ára:  …að eiga vini
80 ára:  …að pissa ekki í buxurnar


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 10:34:19 / rthd

Myndir !!!

Myndirnar eru komnar... (sjá hér til vinstri ) ;)
Kanski ekkert gaman að skoða myndir af fólkinu hér þar sem þið þekkið engann... en það eru líka myndir af skólanum og húsinu mínu o.s.frv. ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun