Meyjan

Árstími Meyjunnar er í lok sumars. Þá hefur gróðurinn náð blóma og ávextir jarðarinnar þroska. Meyjan er því fædd á frjósömum uppskerutíma, tíma athafnasemi, vinnu og undirbúnings fyrir komandi haust og vetur.
Jarðbundin og dugleg
Hin dæmigerða Meyja er jarðbundin og raunsæ. Hún hefur sterka rökhugsun og sérstaka hæfileika og áhuga í sambandi við viðskipti, miðlun, menntamál og þjónustustörf. Meyjan er iðulega dugleg og iðin og á oft erfitt með að sitja kyrr og slaka á. Sumar Meyjur taka til dæmis aldrei frí eða fara að vinna eitthvað annað í fríinu og fá samviskubit ef þær hafa ekki eitthvað fyrir stafni. Oft er Meyjan eirðarlaus og þá einkennist framkoma hennar af hreyfanleika, málgefni og vissu stressi.
Skýrleiki
Meyjan hefur skarpa hugsun og það er algengt að sjón hennar sé með afbrigðum skýr, þ.e.a.s. hún sér veikleika í skýru ljósi og er meðvituð um útlit, klæðaburð og hegðunartakta fólks. Hún er nákvæm og sér einstök smáatriði hvers máls. Nákvæmni á smáatriði er það mikil að stundum tekur hún ekki eftir heildarmyndinni, trén skyggja þá á skóginn. Meyjan er einnig næm á hið líkamlega, á líkama sinn og útlit, og það sem hún borðar og lætur ofan í sig. Áhugi á mataræði, heilsumálum, líkamsrækt og hollustu er því algengur.
Fullkomnunarþörf
Eitt sterkasta einkenni Meyjunnar er fullkomnunarþörf. Ekkert er nógu gott. Alltaf þarf að laga og betrumbæta. Hún gerir því miklar kröfur til sín (og annarra) og finnst að hún þurfi stöðugt að vanda sig og ná fullkomnu valdi á viðfangsefnum sínum. Þessi fullkomnunarþörf er bæði blessun og bölvun. Hún leiðir til þess að Meyjan á til að vanmeta sjálfa sig en einnig til þess að hún leysir verkefni sín vel af hendi og er treystandi fyrir því sem hún á annað borð tekur að sér.
Skörp hugsun
Meyjan hefur að upplagi raunsæja og gagnrýna hugsun og sérstakan hæfileika til að greina mál í smáeiningar, raða niður í flokka og leita að villum. Meyjan er hinn fæddi gagnrýnandi. Hugsun hennar er einnig vel til þess fallin að læra tungumál eða leggja stund á fræðistörf. Auðvitað fást ekki allar Meyjar við slík mál en samt sem áður búa þær yfir þessum eiginleikum. Ef þær fást ekki við fræðilega gagnrýni taka þær í staðinn vini sína, ættingja eða vinnufélaga fyrir og finna veikleika í fari þeirra, oftar en ekki í þeim tilgangi að hjálpa eða laga það sem Meyjan telur að hafi farið miður.
Viðskipti
Meyjan hefur oft áhuga á verslun og viðskiptum, enda ríkt í eðli hennar að vilja framkvæma og hreyfa við hlutum, eða láta málin ganga áfram. Kyrrstaða er andstæð eðli hennar, enda er Meyjan breytilegt merki sem þarf á hreyfingu og fjölbreytni að halda. Hún verður eirðarlaus ef hún hefur lítið fyrir stafni. Meyjan hefur í raun gaman af því að vinna, kannski vegna þess að hún á erfitt með að vera kyrr. Eitt helsta einkenni margra Meyja er að vera á sífelldum þönum, hlaupandi fram og aftur, alltaf að gera eitthvað.
Vinna og árangur
Til að næra lífsorku sína þarf Meyjan að sjá eftir sig áþreifanlegan árangur. Ef hún er fræðimaður er æskilegt að hún geti bent á bók sem hún átti þátt í að semja, ef hún er handverksmaður þarf hún að sjá verk sín í notkun. Ef til vill þarf hún fyrst og fremst að hafa það á tilfinningunni að starf hennar hafi tilgang og gagnist öðrum. Meyjan er merkið sem hefur það verkefni að koma uppskerunni í hús og búa í haginn fyrir komandi haust og vetur. Hún þarf að vinna.
Hrúturinn

Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.
Frumkvöðull
Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum.
Keppni og áskoranir
Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku.
Fram á veginn
Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa. Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri, nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að.
Fljótfær og uppstökkur
Hinn dæmigerði Hrútur er fljótfær og á til að vera uppstökkur. Hann er tilfinningaríkur og skapstór. Þetta kemur sérstaklega fram ef einhver ætlar að stöðva hann eða hindra hann í að gera það sem hann hefur ætlað sér. Hann þolir ekki tafir. Þá er hætt við að hann rjúki skyndilega upp. Á móti kemur að hann er fljótur að róast og fyrirgefa.
Einlægur
Dags daglega, og þegar allt er í lagi, þá er Hrúturinn einlægur og vingjarnlegur í fasi, og yfirleitt hress og jákvæður. Hann er að mörgu leyti það sem kalla má 'hrein sál', eða maður sem flækir hlutina ekki að óþörfu. Hann stundum svolítið barnalegur í einlægni sinni og hreinskilni, en oftast er honum fyrirgefið, því hann meinar í raun ekkert illt með því, þó að hann skjóti á fólk eða slái einstaka sinnum frá sér.
Snerpa og hraði
Segja má að Hrúturinn sé skorpumaður og spretthlaupari. Lífsorka hans er hröð og hann starfar einna best þegar mikið er um að vera og krafist er snerpu og skjótrar ákvarðanatöku. Um Hrútinn er sagt að hann eigi að treysta á fyrstu tilfinningu sína í hverju máli. Slíkt reynist honum best.
Krabbinn

Krabbinn er varkár og íhaldssamur tilfinningamaður. Hann fæðist í byrjun sumars og því ríkt í eðli hans að hlúa að nýgræðingi, rækta, hjálpa og ala upp. Aðhlynning er því lykilorð fyrir Krabbann. Þessi eiginleiki getur birst á margvíslegan hátt eftir aðstæðum. Krabbinn í viðskiptalífinu tekur að sér yngri skjólstæðinga og hjálpar þeim áfram og leikstjórinn í Krabbanum velur ungt fólk í lykilhlutverk.
Seigla og útsjónarsemi
Krabbinn er varkár og frekar hlédrægur um eigin hagi, en eigi að síður fastur fyrir og ákveðinn þegar á þarf að halda. Hann býr yfir hæglátri seiglu og er séður og útsjónarsamur. Varkárni Krabbans birtist þegar hann er að skoða ný mál. Hann opnar dyrnar til hálfs og tekur eitt skref fram á við til að kynna sér aðstæður. Síðan tekur hann tvö skref afturábak, dregur sig í hlé og skoðar málið í rólegheitunum. Hann vill hafa vaðið fyrir neðan sig og þreifa sig áfram. Það getur því tekið langan tíma að kynnast honum og þótt hann sýni áhuga bítur hann ekki endilega strax á agnið. Þegar hann hefur hins vegar tekið endanlega ákvörðun um að ganga í ákveðið verk berst hann með kjafti og klóm og gefst ekki auðveldlega upp.
Ábyrgðarkennd
Krabbinn hefur sterka ábyrgðarkennd og er yfirleitt traustur og samviskusamur. Hann vill leysa þau verk sem hann tekur að sér. Fyrir vikið er honum oft treyst fyrir ábyrgðarstörfum. Hann er einnig frumkvæður sem birtist í því að Krabbar taka oft að sér forystu á þeim sviðum sem þeir velja sér.
Íhaldssemi
Íhaldssemi Krabbans birtist m.a. í því að hann er fastheldinn á þær skoðanir sem hann temur sér eða á þá hluti sem honum eru kærir. Hann vill oft búa í gömlu húsi með sál, andrúmslofti og grónum garði. Það nýja og sálarlausa lítur hann hornauga. Íhaldssemin birtist einnig í sterkri öryggisþörf og því að hann safnar að sér hlutum, á erfitt með að henda því gamla og hugsar til þess að eiga varasjóð. Honum finnst óþægilegt að skulda eða búa við óvissu í sambandi við heimili, vinnu og fjármál. Oftast nær er Krabbinn mikill heimilismaður og fjölskylda, börn og nánir vinir skipta hann meira máli en gengur og gerist. Yngri Krabbar fela oft þessa eiginleika, enda ekki svalt að vera íhaldssamur heimilismaður á unglingsárum. Þá er hin fræga Krabbaskel sett upp, og svalt yfirborð látið hylja innri viðkvæmni.
Tunglsveiflur
Krabbinn er oft misjafn í skapi og framkomu. Karlmenn í merkinu eiga stundum til að vera hranalegir og fráhrindandi í framkomu, ekki vegna slæms upplags, heldur til að fela feimni. Tilfinningaríkum og næmum manni finnst oft að hann þurfi að verja sig og geti ekki hleypt hverjum sem er nálægt sér. Hann býr því til töff skel til að verja sig. Til að skilja skapgerð Krabbans er ágætt að líta á flóð og fjöru og kvartilaskipti Tunglsins. Tunglið er dimmt og ósýnilegt þegar það er nýtt en bjart og áberandi þegar það er í fyllingu. Skapgerð Krabbans er svipuð, stundum vill hann draga sig í hlé og vera einn með sjálfum sér, stundum er hann opinskár, hlýr og gefandi, jafnvel allra manna hressastur. Það getur því verið erfitt að reikna hann út. Eina stundina vill hann vera heima hjá sér, en þá næstu er hann reiðubúinn að fara út á lífið og rabba við fólk um daginn og veginn.
Náttúrubarn
Krabbinn er náttúrumaður, nýtur sín nálægt hafi eða vatni og þarf að hafa tré og gróður í umhverfi sínu. Sund og göngutúrar niður í fjöru eða út í sveit eru meðal þeirra íþróttagreina sem Krabbinn ætti helst að leggja stund á. Vatn og útivera hreinsa og endurnæra orku hans.
Sporðdrekinn

Árstími Sporðdrekans er mitt haustið. Á þessum tíma styttist dagurinn óðfluga og skammdegismyrkrið eykst. Gróðri hnignar, lauf eru fallin af trjám, frost sest í jörð og veður versnar. Fyrir Sporðdrekann er þessi tími mótandi og setur mark sitt á sálina. Hann er því heldur dulur og lifir töluvert í eigin heimi.
Tilfinningar
Sporðdrekinn er tilfinningaríkur og frekar varkár. Að öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er kjarnyrtur og hreinskilinn og lítið fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur og tekur tilfinningar og líðan annarra inná sig. Hann heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Hann vill kafa djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar hann er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að ræða hvað sem er. Sporðdrekinn getur því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.
Stjórnsemi
Sporðdrekinn er eitt af stöðugu merkjunum. Það táknar að hann er fastur fyrir og ósveigjanlegur í persónulegum stíl sínum og viðhorfum. "Nei, þetta geri ég aldrei," segir hann og verður ekki haggað. Þó hann geti virst rólegur á yfirborðinu er hann ráðríkur og stjórnsamur. Hann vill ráða, að minnsta kosti yfir eigin umhverfi og lífi.
Heilindi
Sporðdrekinn er skapstór og tilfinningaríkur og tekur ákveðna afstöðu með eða á móti mönnum og málefnum. Hann vill ganga heill að hverju verki, hvort sem er um vinnu, ást eða áhugamál að ræða. Hann er lítið fyrir hálfkák og vill komast til botns í hverju máli. Sporðdrekinn er því ekki maður sem á auðvelt með að skipta sér á milli margra ætlunarverka.
Einbeiting
Alvörugefni Sporðdrekans og þörf fyrir að komast til botns tengist öðrum persónuleikaþætti, sem er einbeiting. Hann hefur þann hæfileika að geta einbeitt sér að ákveðnum málum og útilokað umhverfi sitt og annað sem er óviðkomandi. Segja má að honum hætti til að fá einstök mál á heilann, svo jaðri við þráhyggju.
Kaldhæðni
Skopskyn Sporðdrekans birtist oft í beittum og kaldhæðnislegum athugasemdum. Hann á til að "stinga" með eiturbroddinum fræga þegar sá gállinn er á honum. Hann er því erfiður andstæðingur og vont að lenda í rimmu við hann, enda á hann til að vera grimmur ef fólk reitir hann til reiði eða stendur í vegi fyrir honum. Hann berst hins vegar af sama krafti fyrir þá sem honum þykir vænt um og er að öllu jöfnu traustur og góður vinur.
Dulúð
Sporðdrekinn hefur áhuga og hæfileika á sviði rannsókna. Hann heillast oft af því sem er dularfullt og hefur gaman af að svipta hulunni af yfirborðinu og komast að kjarna málsins. Hann hefur því oft áhuga á spennumyndum og glæpasögum, en einnig á dauðanum, kynlífi og reyndar öllu því sem er á einhvern hátt hulið myrkri, spennu og dulúð.
Einvera
Til að endurnýja lífsorku sína og viðhalda henni þarf Sporðdrekinn að draga sig annað slagið í hlé. Hann þarf á reglulegri einveru að halda. Ef önnur merki viðkomandi Sporðdreka eru félagslynd getur komið að sömu notum að skipta annað slagið um umhverfi. Hann þarf að hreinsa sig af utanaðkomandi áhrifum, til að geta sinnt eigin verkefnum án afskiptasemi og til að koma stillu á 'vatnið'. Einbeitingin er sterkust og ímyndunaraflið flæðir best þegar kyrrð ríkir í umhverfinu.
Nautið

Nautin eru fædd að vori, þegar daginn er tekið að lengja og náttúran að vakna til lífsins. Vorið er frjósamur og gjöfull tími vinnu og undirbúnings fyrir sumarið en jafnframt tími til að njóta vaxandi veðurblíðu og grænkandi náttúru. Þetta endurspeglast í upplagi Nautsins, sem sambland af vinnugleði og leti, eða því að skapa og njóta. Hið dæmigerða Naut er því duglegur nautnamaður.
Gæflyndi
Í samræmi við vorblíðuna er Nautið að öllu jöfnu gæflynt í skapi. Það trúir á lífið og sér ekki ástæðu til annars en að menn lifi í sátt og samlyndi. Það vill stunda vinnu sína, eiga gott heimili og sinna áhugamálum og félagslífi, og vill jafnframt láta aðra í friði með sitt.
Einbeiting
Eitt helsta einkenni Nautsins er sterk einbeiting og í tengslum við það hæfileiki til að útiloka umhverfið og þá þætti sem það telur sér óviðkomandi. Nautið er frekar hlédrægt og varkárt í skapi og í raun feimið. Segja má að Nautið sé rólegur og traustur persónuleiki, að öllu jöfnu vingjarnlegt og seinþreytt til reiði. En þegar Nautið reiðist, þá reiðist það svo um munar.
Jarðbinding
Nautið er jarðarmerki og vill því sjá áþreifanlegan árangur gerða sinna. Orði verður að fylgja athöfn og því framkvæmir Nautið flest það sem það ætlar sér og er að öllu jöfnu áreiðanlegt. Nautið trúir á það sem það sér og getur snert á, en hið óáþreifanlega á síður upp á pallborðið. Þessi jarðbinding getur birst á ýmsan hátt. Annars vegar eru Nautin fólk sem getur rekið fyrirtæki eða fengist við hagnýtar framkvæmdir og hins vegar fólk sem lifir í sterkum tengslum við jörðina, náttúruna og hið líkamlega. Nautið metur þess vegna mikils þætti eins og útiveru, líkamlega vellíðan, þægileg húsgögn, góðan mat, fallegt umhverfi, kynlíf, fjárhagslegt öryggi og gott heimili. Það er einstaklingsbundið hvað verður ofan á hjá hverju og einu Nauti. Sum þeirra leggja áherslu á allt framangreint, önnur einungis á sumt. Það að vera jarðbundinn þýðir einnig að vilja hafa fast land undir fótum eða fást við hagnýt mál og hafa ákveðna röð og reglu á umhverfinu.
Þrjóska
Nautið er stöðugt merki og því fast fyrir og oftar en ekki þrjóskt. Persónuleiki þess er fastmótaður og breytist lítið og það heldur sig oft við sömu áhugamálin í langan tíma. Meðal einkenna Nautsins eru því úthald, festa og varanleiki. Það er oft eins og jarðýta. "Ekkert skal stöðva mig. Það er sama hvað það tekur mig langan tíma að ná takmarkinu. Ég skal."
Melta málin
Þegar Nautið hefur bitið eitthvað ákveðið í sig þýðir lítið að ýta á það eða ætla að þvinga það til hlýðni. Ekkert virkar nema skynsamleg rök og þolinmæði. Nautið vill gefa sér tíma, bæði til að taka á móti nýjungum og til að breyta um stefnu. Það þarf að melta hvert mál í ró og næði og því borgar sig ekki að reka á eftir því.
Öryggi
Til að viðhalda orku sinni þarf Nautið ákveðna festu og öryggi. Það þarf að sjá áþreifanlegan árangur og þarf að geta einbeitt sér að afmörkuðum sviðum. Það hentar Nautinu ekki að fara úr einu í annað. Fjárhagslegt öryggi skiptir það einnig miklu og skuldir fara verr með Nautið en flest önnur merki.
Náttúran
Nautinu er einnig mikilvægt að komast annað slagið út í náttúruna. Þetta á að sjálfsögðu helst við um þá sem búa í bæjum og borgum eða stunda innivinnu sem krefst lítillar hreyfingar. Nautið á að fara reglulega út fyrir bæinn, á skíði eða í göngu, horfa á tré og fjöll, strjúka lófanum eftir mosavaxinni jörð og anda að sér hreinu lofti. Þetta er hollt fyrir alla en Nautinu lífsnauðsyn.
Menning
Oft er talað um tvær gerðir af Nautum, Jarðarnaut og Venusarnaut. Hið fyrrnefnda er jarðbundnara og þyngra, bæði í skapi og vaxtarlagi. Venusarnautið er aftur á móti léttara í lund og menningarlega sinnað, enda er það svo að menning er ríkur þáttur í lífi margra Nauta. Áhugi á tónlist er til dæmis algengur og mörg þeirra hafa góða söngrödd. Hið sama er að segja um bókmenntir, málaralist og aðrar listir. Það má oft sjá menningaráhuga Nauta á heimili þeirra, sérstaklega þegar þau eru orðin eldri og hafa komið sér fyrir í lífinu. Stórir bókaskápar þekja þá veggi, í einu horni stofunnar er píanó, sem er Nautshljóðfæri, myndir eru á veggjum og umhverfið fallegt. Löngun til að eiga er nokkuð rík í eðli Nauta og þegar áhugi þeirra beinist inn á listræn svið vilja þau oft eiga listaverk.
Varanleg gildi
Eins og getið var um að framan táknar það að vera jarðbundinn einnig það að vera náttúrubarn og að vera raunsær, sjá raunveruleikann í umhverfinu og vilja standa föstum fótum í tilverunni. Þó æskilegt sé fyrir Nautið að búa við fjárhagslegt öryggi segja mörg þeirra að tóm efnishyggja sé sókn eftir vindi. Og þar er ef til vill komið að kjarna málsins. Nautið vill það sem er raunverulegt og hefur gildi fyrir lífið. Þetta getur komið fram í því að það sé lítið gefið fyrir eftirlíkingar og gerviefni í húsbúnaði, en vilji þess í stað vönduð húsgögn úr náttúrulegum efnum. Það getur einnig birst sem þörf fyrir að leita sannleikans á andlegum og listrænum sviðum, að leita varanlegra gilda. Nautið leitar þess sem er satt, varanlegt, djúpt og raunverulegt, hvort sem um eignir, ást eða hugmyndir er að ræða.
Tvíburinn

Tvíburinn er síðasta vormerkið og líkt og með Hrútinn og Nautið má sjá ákveðin voreinkenni í fari hans. Júní er tími heimsókna og ferðalaga, því ófærð og kyrrstaða vetrarins er að baki. Á tíma Tvíburans er sumarið handan við hornið og góðviðri ríkjandi. Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni eru einkennandi, en jafnframt því hreyfanleiki og félagslyndi.
Fjölbreytni
Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni. Honum líður best þegar mikið er um að vera og þess er krafist að hann sinni mörgum verkefnum á sama tíma. Honum leiðist vanabinding og hann verður þreyttur ef hann þarf að fást of lengi við sama verkið. Fjölbreytni og hreyfing eru honum nauðsynleg til að viðhalda orku. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er ein uppáhaldssetning hans: "Ég þarf aðeins að skreppa."
Pælingar
Tvíburinn er loftsmerki og þarf pælingar og vitsmunalega umræðu til að endurnæra orku sína. Tvíburanum fellur því vel að vinna störf sem krefjast hugarbeitingar og fjalla um margvísleg málefni. Hann er fljótur að setja sig inn í ný mál. Lykilorð fyrir Tvíbura eru tjáskipti og upplýsingamiðlun, enda margir kennarar, blaða- og fréttamenn fæddir í þessu merkinu.
Félagslyndi
Tvíburinn er félagslyndur. Ef hann er bundinn inni á heimili, er í félagslegri einangrun eða er fastur yfir einhæfum handtökunum, verður hann fljótt leiður, þreyttur og slappur. Þegar mikið er um að vera og nóg af fólki, forvitnilegum atburðum og umræðu, lyftist geð hans og orkan eykst. Ef hann er ekki léttur og hress, gæti ástæðuna verið að rekja til of einhæfra lífshátta.
Forvitni
Tvíburinn er oftast forvitinn og fróðleiksfús. Ef starf hans er ekki fjölbreytt og fræðandi situr hann oft fyrir framan sjónvarp í frístundum sínum, skiptir á milli rása og horfir á fréttir og fræðsluþætti. Þörfin fyrir fræðslu, hreyfingu og fjölbreytni, getur því birst líkamlega, sem þörf fyrir að setjast uppí bíl og keyra á milli staða, eða á huglægan hátt, sem hreyfanleg og leitandi hugsun.
Málgefni og fjölhæfni
Tvíburinn er oft málgefinn (staða hugarpláneturnnar, Merkúrs, skiptir miklu í þessu sambandi) og hefur gaman af því að segja frá. Í fjölskylduboðum og öðrum samkvæmum gengur hann á milli manna og herbergja og talar og segir sögur. Auk félagslyndis og sagnagleði, er fjölhæfni eitt af einkennum hans, sem þýðir að margir í þessu merki fást við tvö til þrjú mismunandi störf. Ef Tvíburinn er í einu starfi, þá leitar hann eftir breytilegum verkefnum innan þess starfs, pælir mikið og er alltaf reiðubúinn að skoða nýja fleti eða ræða við samstarfsmenn um þeirra mál. Tvíburinn hefur ekki áhuga á að beina athyglinni lengi að einu máli í einu.
Frelsisást
Annað einkenni á Tvíbura er frelsisást. Honum er illa við bönd, sérstaklega þau sem hindra hreyfanleika hans. Því er það svo að þótt Tvíburinn sé að öllu jöfnu vingjarnlegur og glaðlegur, þá hleypir hann fólki ekki of nálægt sér.
Tvískipting
Eins og nafnið Tvíburi gefur til kynna virðist oft sem Tvíburinn geymi tvo persónuleika innra með sér. Þetta birtist í fjölhæfni hans og þörf fyrir fjölbreytni, en einnig í óútreiknanlegu eðli eða því að hann getur sýnt tvö andlit, eftir umhverfi og aðstæðum.
Ljónið

Tími Ljónsins er hásumarið, heitasti tími ársins. Á þessum árstíma skrýðist náttúran sínu fegursta, gróður blómstrar og litadýrð er mikil. Þessa dýrð má sjá í fari Ljónsins, sem oft hefur skrautlega og stóra sál og sterka þörf fyrir að tjá sig.
Í miðju
Ljónið er yfirleitt hreint og beint í framkomu og falslaust. Það hefur tilhneigingu til að draga að sér athygli og lenda í miðri hringrás atburða. Ljónið sækir oft í störf sem gera það áberandi, eða eru þess eðlis að það verður að þungamiðju umhverfisins.
Opin tjáning
Þegar Ljónið er í góðu skapi geislar það og glitrar af gleði og smitar út frá sér í umhverfi sitt. Þá 'kveikir' það í öðrum. Þegar það er óánægt sést óánægjan einnig langar leiðir, enda er Ljónið merki sem sýnir það sem býr innra með.
Fast fyrir
Ljónið er viljasterkt, fast fyrir, stöðugt og ákveðið þegar það hefur á annað borð tekið afstöðu til mála. Algengt er að það móti sér sérstakan stíl sem það heldur síðan fast í. Það er að mörgu leyti ósveigjanlegt, ráðríkt og stjórnsamt og telur sig iðulega vita betur en aðrir, hvað er rétt eða rangt.
Stórtækt
Ljónið býr yfir sannfæringarkrafti og ágætum stjórnunarhæfileikum. Það er einnig oft á tíðum kraftmikið og stórtækt. Oft taka Ljón sig til og framkvæma það sem aðrir létu sig ekki dreyma um að væri mögulegt. Þess á milli getur Ljónið tekið dugleg letiköst, enda kann það því vel að sleikja sólina og njóta lífsins.
Skapandi sjálfstjáning
Til að næra lífsorku sína þarf Ljónið að fást við skapandi athafnir, ekki endurtekningar og lognmollustörf. Það hentar því ekki að standa við færiband. Ljónið þarf að setja sinn persónulega stimpil á verkefni sín, enda er skapandi sjálfstjáning lykilatriði í lífi þess. Margir af þekktustu skemmtikröftun heimsins (og Íslands) eru í Ljónsmerkinu, svo sem Mick Jagger, Madonna, Diddú, Sigga Beinteins, Birgitta Haukdal o.s. frv.
Hugsjónir
Ljónið er eldsmerki og því hugsjónamaður að upplagi. Það táknar að því líður best þegar það er að berjast fyrir hugsjónum. Ljónið verður að hafa áhuga. Viðfangsefnin þurfa að kveikja eldinn.
Heiðarleiki
Meðal bestu eiginleika Ljónsins er heiðarleiki og einlægni. Hið dæmigerða Ljón vill segja satt hvað sem það kostar. Það vill vera trútt markmiðum sínum og hugsjónum. Ljónið er stolt, hjarthlýtt og göfuglynt merki.
Vogin

Árstími Vogarinnar er haustið, þegar litir eru sterkir í náttúrunni og sumarið og uppskeruvinnan er að baki. Veður eru enn ágæt og því góður tími til að sinna félagslífi. Fyrsti mánuður haustsins er rómantískur og það fólk sem fæðist í Vogarmerkinu þykir ljúft, listrænt og félagslynt.
Jafnvægi og réttlæti
Til að skilja Vogina þarf að horfa á 'tákn' merkisins, vogina sem hefur það hlutverk að vega og meta (uppskeruna). Enda er það oft svo að fólk sem fæðist í þessu merki hefur sterka réttlætiskennd. Það er alltaf að leita að jafnvægi og því sem stillir vogina af. En þetta er hægara sagt en gert, og því geta Vogir sveiflast til. Ef of mikið er sett á aðra skálina þá hallar vogin. Fyrir vikið er Vogarfólkið stundum eftirgefanlegt, stundum hart, stundum ljúft, stundum ákveðið. Þetta er leit að jafnvægi, að 'balance'. Sumar Vogir eru vel stilltar, aðrar sveiflast frá einum pól til annars og eru 'brokkgengar' eins og einn ágætur maður sagði.
Samvinna og sjálfstæði
Það sem einkennir framkomu Vogarinnar, eða það sem hún reynir að birta útávið, er ljúfleiki. Öðrum megin á skálinni er ég og hinu megin við. Þetta er spurning um jafnvægi á milli mín og þín. Jafnvægi á milli sjálfstæðis og samvinnu er eitt af því sem Vogin leitar eftir. Til að samvinna gangi vel reynir hún að koma vel fram við aðra og notar þá ljúfleika, bros og sannfæringarmátt orðanna. En þær Vogir eru einnig til sem færast of mikið í átt til ég-sins og þá er valtað yfir umhverfið. Einnig er talað um hina 'ljúfu frekju', eða þá Vog sem stendur sterk bæði í ég-inu og samvinnunni. En vissulega vilja og reyna flestar Vogir að vera fágaðar, kurteisar og yfirvegaðar.
Félagsmálamaður og pælari
Stjórnandi Vogarinnar er Venus og 'frumþátturinn' er loft. Venus er pláneta fegurðar og samvinnu, og loftið er táknrænt fyrir rökhugsun. Vogir eru því oft félagsmálamenn, listamenn, pælarar og pólitíkusar sem berjast fyrir réttlætismálum eða boða ákveðna heimssýn og kenningar. Stundum sameinast þetta allt í einum og sama manninum.
Það sem örvar Vogina
Til að endurnýja og viðhalda lífsorku sinni, þarf Vogin að dvelja í félagslega og hugmyndalega lifandi umhverfi. Það þýðir að hún þarf að hitta fólk sem örvar hugsun hennar. Hún þrífst illa í einangrun og andlegu tómarúmi. Hún tapar orku við slíkar aðstæður. Vogin þarf á fólki, félagslífi og samvinnu að halda. Það á reyndar við um flest fólk, en þetta skiptir öllu máli fyrir Vogina og varðar það að næra lífskraftinn.
Bogmaðurinn

Hinn dæmigerði Bogmaður er athafnamaður sem þarf hreyfingu, líf og fjölbreytni. Honum er illa við vanastörf og verkefni sem ekki eru ögrandi. Hann fær leið á því sem hann kann og veldur of auðveldlega. Að sama skapi á hann erfitt með að sitja lengi kyrr á sama staðnum. Hann þarf svigrúm og frelsi. Allt það sem þrengir sjóndeildarhring hans, festir hann niður og hindrar hreyfingu orkar þvingandi á hann.
Þekkingarleit
Eitt sterkasta einkenni Bogmannsins er fróðleiksþorsti. Hann vill kynnast heiminum, þráir þekkingu og vill hafa yfirsýn yfir margvíslegustu málefni. Hann nýtur þess að ferðast, læra og fást við verkefni sem víkka sjóndeildarhring hans.
Eirðarleysi
Þrátt fyrir áhuga á þekkingu eru sumir Bogmenn lítið fyrir langskólanám og þá sérstaklega nám sem er einhæft og afmarkað. Þetta má ekki túlka á þann veg að öllum Bogmönnum leiðist skólaganga. Það er ekki rétt, því margir njóta þess að svala forvitni sinni í fjölbreyttu námi og taka slíkt fram yfir einhæf störf á vinnumarkaði.
Hreyfing og stórhugur
Það má segja að til séu tvær algengar gerðir Bogmanna. Annars vegar er kraftmikill íþróttamaður sem leggur á unga aldri stund á fjöldann allan af greinum. Síðar fer hann út í atvinnulífið af sama krafti og leggur áfram áherslu á hreyfingu, frelsi og fjölbreytni. Hins vegar er það hinn huglægi Bogmaður sem leitar fróðleiks og tilbreytingar í bókum, námi, heimspeki, ferðalögum, menningu og listum. Stundum sameinast þetta tvennt í einum og sama manninum. Hver svo sem áherslan er nákvæmlega þá er Bogmaðurinn oftast stórhuga og takmarkalítill í hugsun og gerðum.
Bjartsýni
Bogmaðurinn er að öllu jöfnu jákvæður, hress og bjartsýnn. Hann er þægilegur í umgengni og þykir skemmtilegur félagi. Hann er lítið gefinn fyrir að búa til vandamál og vill sjá og sér bjartari hliðar tilverunnar. Hann er því oft líflegur og hressilegur. Það er oft sagt um Bogmanninn að hann sé heppinn. Það er líklega vegna þess að hann er glaðlyndur og því finnst fólki gaman að gera honum greiða. Einnig fer hann víða, prófar margt og er opinn fyrir tækifærum. Hann þorir að breyta til og takast á við ný verkefni.
Fjölbreytni
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Bogmaðurinn að búa við fjölbreytta lífshætti. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, ferðast og vera frjáls, eða þarf að minnsta kosti að hafa það á tilfinningunni að hann geti gengið út hvenær sem er. Höft og vanabinding leiða til þreytu, nýjungar skapa lífsgleði og auka kraft hans.
Steingeitin

Árstími Steingeitarinnar markar ákveðin kaflaskil sem verða í náttúrunni um vetrarsólstöður. Þá er nóttin lengst og dagurinn stystur á árinu. Upp frá því fer birta vaxandi. Steingeitin er því frumkvæð og er merki byrjunar og vaxandi jákvæðrar uppbyggingar.
Jarðbundin
Steingeitin er jarðbundin og leggur áherslu á að ná áþreifanlegum árangri og standa traustum fótum í tilverunni. Ef hún ákveður að gera eitthvað vill hún láta athöfn fylgja orðum. Hún er raunsæ og sér heiminn eins og hann er, en er tiltölulega laus við óskhyggju.
'Byggingameistari'
Steingeitin er að öllu jöfnu varkár og skipulögð og vill byggja upp lið fyrir lið, leggja einn stein í einu og treysta undirstöðu hans áður en hún leggur þann næsta. Hún reynir að ná samfellu í líf sitt og störf, byggja á því sem er fyrir og bæta það og auka. Hún er því lítið gefin fyrir róttækar breytingar og telst frekar íhaldssöm. Steingeitin vill halda fast í gömul gildi og virða siði og hefðir fortíðarinnar. Ekki má misskilja orðið íhaldssemi, en það sem átt er við er að hún er íhaldssöm á sína eigin siði og reglur, það sem henni sjálfri þykir kært. 'Rokkarinn' í Steingeitinni heldur fast í greiðsluna þó að hann sé kominn nálægt sextugu. Hann er íhaldssamur á sitt.
Formfesta
Hin dæmigerða Steingeit er alvörugefin. Steingeitin er kraftmikið merki, en á til feimni og hlédrægni. Oft eru viðbrögðin þau að leggja áherslu á grín, sem á þá að fela sterka sjálfsmeðvitund. Steingeitin er einnig varkár, yfirveguð og formföst. Sjálfsagi skiptir hana miklu og henni er illa við að missa stjórn á skapi sínu. Hún heldur því oft aftur af sér og sýnir sjaldan reiði. Hún á frekar erfitt með að sleppa fram af sér beislinu.
Ábyrgð
Sterk ábyrgðarkennd einkennir Steingeitina. Hún reynir að leysa hvert það mál sem hún tekur að sér af kostgæfni, en sterk fullkomnunarþörf gerir það að verkum að henni finnst sjaldan sjálfri að það sem hún gerir sé nógu vel af hendi leyst. Sjálfsafneitun er einnig sterkur þáttur í fari hennar og hún fórnar sér oft eða afneitar eigin löngunum vegna ábyrgðar, vinnu eða annarra utanaðkomandi þátta. Oft er sagt, bæði í gamni og alvöru, að Steingeitin beri áhyggjur heimsins á herðum sínum.
Árangur
Dæmigerð Steingeit er að öllu jöfnu dugleg og vinnusöm. Hún vill ná árangri og búa vel. Ytri aðstæður skipta hana miklu, svo sem að vel sé búið að heimili hennar, fjölskyldu og ástvinum. Hún leggur því iðulega mikið á sig til að koma þessum málum vel í höfn.
Stjórnsemi
Oftast er sagt að Steingeitin sé metnaðargjörn og stjórnsöm. Sjálf neitar hún þessu hins vegar iðulega og segir að hún sé einfaldlega beðin um að taka á sig ábyrgð og sé ýtt upp á við af öðrum. Steingeitin segir oft að hún hafi engan áhuga á því að stjórna, hún vilji einungis hjálpa og viti stundum betur en aðrir hvernig best sé að vinna ákveðin verk. Eins og með orðið íhaldssemi, er rétt að útskýra orðið metnað. Margir rugla metorða- og metnaðargirni saman. Staðreyndin er sú að sumar Steingeitur eru metorðagjarnar, en flestar eru þær metnaðargjarnar, í þeirri merkingu að vilja gera vel það sem þær taka að sér.
Skipulagning
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Steingeitin að búa við öryggi og reglufestu. Hún verður óróleg ef jarðsambandið er lítið eða mál hennar í óvissu og lausu lofti. Hún þarf að búa við ákveðið skipulag og vill móta líf sitt með hliðsjón af langtímaáætlunum. Hún skipuleggur því oft fram í tímann og vill að því skipulagi sé framfylgt. Steingeitin þarf að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Gamla geitin
Oft er sagt að Steingeitin sé það merki sem eldist hvað best. Sagt er í gríni að hún fæðist gömul og leiðinleg, en kveðji ung og skemmtileg. Vegna sterkrar fullkomnunarþarfar og sjálfsgagnrýni er fyrri hluti ævinnar erfiðari, en þegar hún eldist og nær tökum á viðfangsefnum sínum þá verður þetta allt léttara. Að lokum má svo geta þess að Steingeitin býr yfir geysilegri seiglu og þó að hún virðist dauð og tröllum gefin, rís hún iðulega upp aftur og nær að endurheimta það sem virtist glatað.
Vatnsberinn

Árstími Vatnsberans er miðja vetrarins. Dagarnir lengjast en enn er langt í vorið og sumarið. Ákveðin biðstaða ríkir í náttúrunni. Segja má að froststillur vetrarins, þeir dagar í janúar og febrúar þegar veður er kalt en algert logn ríkir og sjá má langt og víða, lýsi eðli Vatnsberans. Hann er iðulega svalur, heiðríkur og yfirvegaður eins og lygn og fallegur vetrardagur.
Yfirvegun
Hinn dæmigerði Vatnsberi er yfirleitt rólegur, vingjarnlegur og þægilegur í framkomu. Hann er yfirvegaður og viðræðugóður en hleypir fólki samt sem áður ekki of nálægt sér. Hann er oft á tíðum heldur dularfullur eða a.m.k. fjarlægur. Að minnsta kosti finnst öðrum oft erfitt að átta sig á honum. Ein ástæða fyrir þessu er sú að hann er frekar ópersónulegur og lítið fyrir að ræða um sjálfan sig og bera tilfinningar sínar á torg.
Hugsun og skynsemi
Vatnsberinn er hugmyndamerki og vill láta hugsun og skynsemi stjórna gerðum sínum og tilfinningum. Hann hefur þann hæfileika að geta verið hlutlaus, jafnvel þegar um erfið mál er að ræða. Svo virðist sem hann fari þá 'útfyrir' sjálfan sig eða geti horft ópersónulegum augum á það sem er að gerast. Vatnsberinn er rökfastur og hefur því hæfileika og getu til að taka skynsamlega afstöðu til mála. Hann hefur einnig orð á sér fyrir að hafa skýra og yfirvegaða hugsun.
Stöðugleiki
Vatnsberinn er eitt af stöðugu merkjunum. Hann er því fastur fyrir og á til að vera þrjóskur og stífur. Hann heldur fast í hugmyndir sínar og hefur sérstök viðhorf til lífsins. Hann á einnig til að vera frekur og stjórnsamur, en fer oft fínt með þann eiginleika. Kannski má frekar segja að stjórnsemi hans varði fyrst og fremst hann sjálfan og birtist í því að honum er illa við afskiptasemi annarra. Hann vill því ekki endilega stjórna öðru fólki, því slíku fylgir iðulega ábyrgð og persónulegt ófrelsi.
Félagslyndi
Vatnsberinn er félagslyndur og þarf á fólki að halda, en félagslyndi hans birtist oft þannig að hann vill hafa margt fólk í kringum sig en samt sem áður ekki vera bundinn ákveðnum einstaklingum.
Á undan samtímanum
Það er einkennandi fyrir Vatnsbera að leitast eftir því að skapa sér sérstöðu. Það hver sérstaðan er er mismunandi frá einum Vatnsbera til annars. Sumir leggja áherslu á sérstakan klæðaburð og stíl (og eru alltaf einu skrefi á undan tískunni). Aðrir hafa ákveðnar og stundum óvenjulegar hugmyndir sem valda því að þeir skera sig úr fjöldanum. Hver sem aðferðin er nákvæmlega þá er Vatnsberinn oft uppfinningasamur og frumlegur.
Pælingar
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Vatnsberinn að hafa fólk í kringum sig og hafa úr nógu að moða hvað varðar hugmyndir og pælingar. Hann verður daufur og orkulítill ef hann er í félagslegri einangrun og hefur fátt til að örva hugann. Hann þarf að hafa ákveðna yfirsýn yfir lífið og tilveruna og ef sjóndeildarhringurinn er of þröngur þrífst hann illa.
Frelsi
Að lokum má geta þess að sterk frelsisþörf er eitt helsta einkenni Vatnsberans. Það hvernig hann sækir frelsi sitt er mismunandi frá einum til annars, en oftast notar hann sambland af hlutleysi, yfirvegun og því að leitast við að vera óháður öðrum. Vatnsberi sem vinnur á stórum vinnustað, svo dæmi sé tekið, leggur oft áherslu á að vera hlutlaus gagnvart vinnufélögum sínum og þá sérstaklega þeim sem eru ráðríkir og tilætlunarsamir. Hann kemur yfirleitt fram af yfirvegun. Hlutleysi og yfirvegun gera það að verkum að hann stuðar aðra ekki, sem fyrir vikið 'hafa ekkert á hann'. Hann heldur því frelsi sínu. Og með því að vera óháður, þ.e.a.s. að taka ekki afstöðu með einni klíku gegn annarri, þá gerist það sama. Hann er frjáls að umgangast hvern sem er og halda þeirri yfirsýn sem hann vill halda. Sumir Vatnsberar auglýsa sérstöðu sína, en yfirvegun og hlutleysi annarra er þess eðlis að fólk tekur ekki eftir því hversu sjálfstæðir og sérstakir þeir eru í raun. Þar fyrir utan er sérstaða Vatnsberans oft fólgin í hugsun hans og hugmyndaheimi, frekar en athöfnum, enda Vatnsberinn pælari og hugsuður.
Fiskurinn

Árstími Fisksins er í lok vetrar, þegar veður er umhleypingasamt. Þetta endurspeglast í eðli Fisksins, í margbrotinni og misjafnri skapgerð. Tími Fisksins er biðtími. Vorið er að nálgast og með því fyrirheit sumarsins en enn ríkir þó vetur. Á þessum tíma er litið um öxl yfir liðinn vetur. Jafnframt er horft fram á við og það undirbúið eða hugleitt sem gera skal á komandi vor- og sumarmánuðum. Þetta birtist í því að Fiskurinn hefur hæfileika til að hafa yfirsýn yfir mál og hugleiða þau í stærra samhengi.
Aðlögunarhæfni
Fiskurinn er í innsta eðli sínu næm tilfinningavera. Hann er breytilegt vatnsmerki og getur því tjáð sig á margslunginn hátt. Hann er síðasta merkið í dýrahringnum og er oft sagt að hann hafi öll önnur merki fólgin í skapgerð sinni. Fiskurinn getur því verið víðsýnn og margbrotinn, fær um að skilja ólíkt fólk og setja sig í spor annarra. Hann hefur sterka aðlögunarhæfni en einnig fjölbreytta valkosti um eigið líf. Hann er því oft fjölhæfur, en getur átt erfitt með að takmarka sig og 'fókusera' á eitt ákveðið. Hann er stórhuga.
Ímyndunarafl
Annar sterkur eiginleiki Fisksins er ímyndunarafl og þar af leiðandi hæfileiki til að sjá atburði og fólk fyrir hugskotssjónum sér. Hann hefur einnig sterkt innsæi. Þetta þýðir að Fiskurinn getur búið til myndir af því sem hann er að hugsa um.
Tveir heimar
Tákn Fisksins er tveir fiskar sem synda hvor í sína áttina, en eru eigi að síður tengdir saman með bandi. Þetta hefur verið túlkað á nokkra vegu. Ein kenningin er sú að til séu annars vegar Fiskar sem syndi á móti straumnum og hins vegar þeir sem láti sig berast með veðri og vindum lífsins. Þetta getur verið rétt, en einnig er hugsanlegt að þetta tákni að í hverjum einstökum Fiski búi tveir eðlisþættir eða ákveðin klókindi. Fiskurinn geti því synt á móti straumnum og geri það þegar sá gállinn er á honum, en kunni einnig að sæta lagi og berast með straumnum þegar það hentar honum betur. Önnur kenning er sú að annar Fiskurinn sé í þessum heimi en hinn lifi í annarri veröld, í heimi ímyndunarafls, lista eða andlegra málefna, eftir því hver persónuleg viðhorf viðkomandi eru. Það er að minnsta kosti staðreynd að Fiskurinn þolir illa gráan og hversdagslegan veruleika og þarf á því að halda að glæða líf sitt litum og búa til ævintýri.
Menning
Áhugi á tónlist, menningu og listum er áberandi í fari Fisksins. Ef hann leggur ekki sjálfur stund á listir hefur hann yfirleitt gaman af því að njóta lista, sækja leikhús, kvikmyndasýningar, tónlistarviðburði, málverkasýningar og þess háttar.
Sköpun
Til að viðhalda lífsorku sinni og endurnýja hana þarf Fiskurinn að fá jákvæða útrás fyrir ímyndunarafl sitt í einhvers konar skapandi viðfangsefnum. Hann tekur mikið inn á sig og þarf því að hreinsa sig reglulega af utanaðkomandi áhrifum. Það getur hann gert með því að njóta tónlistar, með því að draga sig annað slagið í hlé eða með því að breyta til og skipta um umhverfi.
Stór fjölbreytileiki
Vegna sterkrar aðlögunarhæfni og sveigjanleika er sennilega erfiðast af öllum stjörnumerkjunum að setja Fiskinn á afmarkaðan bás. Margir Fiskar sækja í listir, tónlist og dans, aðrir í fjölmiðla, sumir í stjórnmál og enn aðrir í viðskipti. Hvert sem sviðið er nákvæmlega þá notar Fiskurinn innsæi sitt og ímyndunarafl, og er skapandi, stórtækur og landamæralaus í athöfnum.
Þegar talað er um 'Fiska' og 'Fiskinn', er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Fiskamerkinu. Þeir einstaklingar sem fæddust á þeim árstíma hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.
Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.